Heimsóknir
- Hláturblogg
- Huldublogg
- Svartshúmorsblogg
- Afablogg
- Sjóaðblogg
- Spekiblogg
- Rithöfundarblogg
- smsblogg
- Systrablogg
- Geimblogg
- Hydra
- photoalbum
- 01/01/2004 - 02/01/2004
- 02/01/2004 - 03/01/2004
- 03/01/2004 - 04/01/2004
- 04/01/2004 - 05/01/2004
- 05/01/2004 - 06/01/2004
- 06/01/2004 - 07/01/2004
- 07/01/2004 - 08/01/2004
- 08/01/2004 - 09/01/2004
- 09/01/2004 - 10/01/2004
- 10/01/2004 - 11/01/2004
- 11/01/2004 - 12/01/2004
- 12/01/2004 - 01/01/2005
- 01/01/2005 - 02/01/2005
- 02/01/2005 - 03/01/2005
- 03/01/2005 - 04/01/2005
- 04/01/2005 - 05/01/2005
- 05/01/2005 - 06/01/2005
- 06/01/2005 - 07/01/2005
- 07/01/2005 - 08/01/2005
Links
Archives
lífið er ævintýri
Monday, July 04, 2005
arghh... meira ruglið hérna ... nú virkar ekki insert link ... well ... urlið á bloggið er .... http://blog.central.is/asle
kikið á það endilega ég ætla vera þar.
kikið á það endilega ég ætla vera þar.
jæja ákvað að flytja bloggið mitt annað ... getið skoðað það hér Fékk bara leið á þessu gallaða kerfi hérna....
Útilegan með fjölskyldunni fór nú ekki alveg eins og ég hafði hugsað mér, ég var svefnlaus útaf því að ég keypti ódýrann bónus svefnpoka, mæli sko ekki með þeim og fraus í hel og varð þarafleiðandi dauðþreytt og hætti að mjólka eins vel, guttanum var vel heitt allann tímann en hann varð svangur fyrir rest svo við drífðum okkur heim fyrr en áætlað var .... samt var ofsalega gaman að fara á döffmótið og hitta alla, við ætlum að kaupa gott tjald fyrir næstu útilegu og svo ætla ég ekki að sofa í svona lélegum svefnpoka aftur púff...
það var gott að koma heim og hvílast og ná upp mjólkinni allir þokkalega sáttir við það svo verður bara betri útilega næst :)
getur verið að bloggsíðan mín sé að bila ... síðasta innlegg var nú eitthvað spúkí og scrollast lengst niður þó svo ég hafi ekki gert neitt öðruvísi en vanalega.

Tuesday, June 28, 2005
Jæja spjallaði við frænku mína í morgun og hún spurði hvort ég væri hætt að blogga, þó það sé kannski bara 1 manneskja sem saknar þess að lesa hérna þá finnst mér ég verði að skrifa eitthvað smá,.
Finnst ég reyndar svo andlaus ekkert stórmerkilegt að gerast fyrr en um næstu helgi, en þá ætlar fjölskyldan í útilegu í Skorradal ég hlakka til að fara í þessa útilegu aðallega vegna þess að þarna verða allir táknmálstalandi meira og minna, auk þess sem þetta verður eiginlega í fyrsta sinn i 4 ár sem ég fer í alvöru frí með kallinum mínum ekki sæki hann í vinnuna til að stelast niður í nauthólsvíkina í góðu veðri. Unglingurinn dóttir mín bauð vinkonu sinni með í þessa útilegu og þær hanga núna í simanum meira og minna til að skipuleggja sig og flissa, ætli þær séu ekki spá í hvaða stuttbuxum þær eiga að vera í góða veðrinu og hvort þær fái ekki örugglega að vaka frameftir öllu.
Annars fór ég til tannlæknis í morgun og finnst þetta svo andskoti dýrt að láta gera við eina tönn by the way þá var hún ekki skemmd heldur hafði fylling dottið út og það kostaði bara svoooona mikið að gera við hana vá.... og já deyfingin að fara ack !!...
Ekki borða karamellur þær eru djöfullinn í dulargervi.

Tuesday, June 14, 2005
Skírnardagurinn líðinn alveg yndisleg athöfn og allt gekk eins og smurt :) litlinn fékk nafnið Matthías Nökkvi.
Dagurinn byrjaði samt ekki vel, ég byrjaði á að kikja inn í ískáp á skírnartertuna þegar ég komst á fætur og viti menn..... hún var ónýt !! ... eða þannig... marsipanið hafði bráðnað og kakan var einfaldlega ljót :( .... hringdum í árbæjarbakarí og þeir redduðu okkur með mjög litlum fyrirvara, mæli með þessu bakarí alveg topp þjónusta þar.
ég hafði síðan ljótu kökuna samt á borðinu og hún smakkaðist bara VEL eheh... :)

Sunday, June 12, 2005
Tíminn líður einmitt hraðast þegar hann á að vera svolitið hægur :P ... ég er búin að vera á kafi í bakstri fyrir skírnarveisluna á morgun en er búin að baka kökurnar og bara brauðréttirnir eftir sem kallinn minn ætlar að klára hann er líka meistarakokkur og bregst aldrei við eldavélina þannig að hann fær að sjá um það.
Allir krakkarnir eru rosalega spenntir og forvitnir að vita hvað guttinn á að heita, elsta stelpan er búin að kalla hann Bóbó síðan hann fæddist og mig hryllir við þeirri tilhugsun að þetta muni festast við hann, en við foreldrarnir grínumst og segjum að hann eigi að heita Ljótur Bolli og Ljósálfur Spartakus, en það nafn var nýlega samþykkt af mannanafnanefnd ... ég á ekki til orð yfir þeirri nefnd og gæti ekki hugsað mér að nefna barn þeim nöfnum, og það sem merkilegra er að sama nefnd hafnaði Annarósa og Annalísa sem eru þó mun flottari. Þessi nefnd er alveg ótrúleg, og ég gleymi því seint þegar þeir samþykktu Bambi sem kk eiginnafn verra er þó öllu heldur það að til eru foreldrar sem nefna börnin sín svona.
Kannski er bara gott að ekki séu allir með sama smekk, annað yrði sennilega litlaust og tilbreytingarlaust, en öllu má nú ofgera..... Ég geri mér alveg grein fyrir að það er örugglega til fólk sem ekki hrífst af nöfnum barnanna minna en vonandi eru foreldrar allra Bambanna og Ljósálfanna jafn ánægð með nöfnin á sínum börnum og aðrir.
Ég pósta svo nafni guttans á morgun þegar það er orðið opinbert :)

Tuesday, June 07, 2005
Klukkan er 01:36 eftir miðnætti og ég sit hér ein við tölvuna og nýt þess að vera bara ég :) þessi fáu augnablik þegar enginn á heimilinu er vakandi nema maður sjálfur eru rosalega vanmetin. Mér finnst gott að sitja hérna og browsa netið, kikja á póstinn minn, troða nokkrum myndum á heimasiður barnanna og bara fá að vera í friði.
Ekki misskilja mig :) ég elska famíliuna og gæti ekki án hennar verið en svona moment þar sem ekkert er að kalla á mig, enginn að biðja um neitt, búið að sinna dagsverkunum og góður nætursvefn framundan er bara svo yndislegt moment því einmitt þá veit ég hvað ég er heppin og hef það gott og stundum rifjast þá upp þeir tímar sem voru ekki jafn góðir, satt að segja vill enginn hafa upplífað svoleiðis erfiðleika en ég kýs að halda í þá minningu því hún gerir daginn í dag bara enn betri.
Já það er góð tilfinning að vera þakklátur.

Friday, May 27, 2005
Ég ætla í dag að votta virðingu mína þeim konum sem voru uppi fyrir tíma þvottavélarnar, þvílikar hetjur að þvo af fjölskyldunni á þvottabrettum úti við á í skítakulda og svona og hafa engar einnota bleyjur á bossana á krílunum sínum og þurfa að þvo kúkableyjurnar í tugatali og sjóða á hverjum einasta degi.
Ég lenti nefnilega í því að þvottavélin mín dó !!... jebb steindó og spúði reyk um allt ég gersamlega missti mig í þeirri tilhugsun að þurfa að redda þessu öllu með handþvotti kræst !! það er ekki að ræða það við mig að prófa þetta, ég hef einusinni verið í þeirri aðstöðu að eiga enga þvottavél og þurfa að þvo i höndunum en þá var ég ein með elstu stelpuna og þvotturinn 100 sinnum minni en það var samt helviti að standa í þeim pakka og ég legg engan veginn í hann aftur takk fyrir !
Fór bara beint i Bræðurnar Ormsson og verslaði mér nýja vél og þurrkara og bara það dýrasta og flottasta á svæðinu því þetta á sko að endast !! og það er sko besta uppfinning even!! ef karlar hefðu þurft að þvo svona í gamladaga þá hefðu þeir fundið hana upp fyrr ekki spurning!! var það ekki annars karl sem fann þvottavélina upp ?
Núna malar vélin mín yndislega og þvær og þvær og skilar öllu þurru og fínu, ætlar enginn að finna upp sjálfbrjótandi tau sem labbar í skúffur og skápa sjálft ? ekki færi sá uppfinningamaður á hausinn ;)